Lánabreytingar
Eftir útgáfu láns geta komið upp aðstæður sem kalla á breytingar á láni, til dæmis vegna kaupa á nýju húsnæði, tímabundna breytinga á tekjum, tímabundinna greiðsluerfiðleika, fæðingarorlofs eða atvinnuleysis.
Öllum breytingum á lánum þarf að þinglýsa og í sumum tilfellum þarf samþykki síðari veðhafa. Samþykki síðari veðhafa, er átt við að ef aðrar lánastofnanir eru með veð á eigninni á eftir láni sjóðsins þarf sú lánastofnun að samþykkja breytinguna.
Ef breyting hefur í för með sér meira en 20% hækkun á greiðslubyrði þarf að fara í gegnum greiðslumat.
Veðflutningur
Við kaup og sölu eigna er hægt að flytja lán á milli eigna.
Í sumum tilfellum getur verið hagstæðara að flytja núverandi lán á nýju eignina frekar en að taka nýtt lán. Það fer eftir kjörum eldra lánsins og þeim kröfum sem eru í boðið á nýjum lánum.
Skilyrði fyrir veðflutningi er að lánið sé í skilum og að veðstaða láns eftir veðflutning fari ekki umfram hámarksveðhlutfall hjá sjóðnum.
Greiðendur á veðflutta láninu þurfa að vera þeir sömu og þinglýstir eigendur á eigninni sem veðflutt er á.
Veðflutningur er háður samþykki sjóðsins.
Eftirfarandi gögn þurfa að berast sjóðnum við veðflutning:
- Umsókn um veðflutning á láni.
- Síðustu kvittun/kvittanir áhvílandi lána.
- Veðbókarvottorð (sjóðurinn getur útvegað veðbókarvottorð).
- Kaupsamningur/ afsal (ef við á)